Thursday, March 22, 2007

Hittingur..


Það var ekkert smá gaman að fá ykkur allar í heimsókn til mín um daginn...Það er alveg ótrúlegt hvað við komumst margar þarna fyrir..Enda stendur ti á næsta hittinga að sitja bara hérna uppi..

Þá getum við verið miklu fleiri..

En ég verð að taka það fram að það er bannað að mæta fullar þá..

Mér finnst það alltaf jafn skrítið hvað þið gefið mér alltaf mikla sköpunargleði að hitta ykkur og er ég búin að gera skrapplifti síðuna núna..En má ekki sýna hana hér strax..
Ég ákvað að sýna þotualbúmið mitt þar sem ég er á fullu að gera í albúmin hjá hinum gellunum..
Mikið rosalega hlakka ég til að sjá mitt...
Og já ég er alveg að vera búin að gera í öll albúmin..
Ég næ vonandi að klára restina í bústaðnum..
Happy skrapper þar til næst..

Thursday, March 15, 2007

Gamlar myndir..


Jæja þá er ég búin að gera eina síðu í þessari persónulegu áskorun minni..

Mér finnst alveg rosalega gaman að vinna með þessar gömlu myndir því það rifjast alveg upp gamlar minningar við það..

Wednesday, March 14, 2007

Jæja þá er búið að bösta mig hérna..Ég sem ætlaði að fá að vera í friði með þetta á meðan ég væri að læra á þetta.
En jæja svona er víst netið..Það er ekkert einka sem ég pósta hér.Eins gott að gera sér grein fyrir því svo að þjóðarleyndarmálin leki ekki hérna..Ja eða að það leki eitthvað hér úr pottunum...
Því jú það sem skeður í pottunum er eins og með figthclub.
En ég ætla nú að fara að setja inn einhverjar síður sem ég hef verið að scrappa..Sérstaklega þar sem ég ætla að vera dugleg að nota eitthvað af þessum gömlu myndum mínum..

Monday, March 12, 2007

Eins og allir hinir


Jæja Þá er ég orðin eins og allir hinir.Það er eitthvað sem ég ætlaði aldrey að gera.En við vitum hvernig þetta er með Aldrey.
Ég ætla svo að vera rosalega dugleg að setja afrakstur af því sem ég tek mér fyrir hendur og setja hérna inn.
Hvort að einhverjir aðrir en ég lesi þetta kemur svo bara í ljós.