Saturday, June 16, 2007

Vá..Langt síðan síðast..

Mikið búið að ske síðan síðast...
Ég veit eiginlega ekkert hvar ég á að byrja..
Alli ...Elsku Alli okkar er fallinn frá, langt um aldur fram.. Hans verður sárt saknað sérstaklega næstkomandi 7 júlí. Þar sem ég er að fara að ganga í það heilaga þá..
Hann var góður drengur og reyndist mér og mínum alltaf alveg rosalega vel..Allir flutningarnir sem ég hef staðið í þá var Alli alltaf tilbúin að koma og rétta hjálparhönd. En minningin lifir um skemmtilegan, sætan og góðan mann...
Talandi um að ganga í það heilaga þá var ég gæsuð í gær...Og wow..Ég á pottþétt flottustu vinkonur ever..Takk fyrir mig..Ég verð að segja frá því seinna..
Það er allt á fullu í brúðkaupsundirbúningi og ómæ hvað það er gaman...

4 comments:

Anonymous said...

Innilega til hamingju með daginn í dag, sá þig í sjónvarpinu/á netinu ótrúlega flott skvísa

kveðja Elísabet

Barbara Hafey. said...

Innilega til hamingju með daginn í gær og ég þakka kærlega fyrir mig! Þetta var allt svo ótrúlega fallegt og flott í alla staði! ENN og aftur TAKK fyrir mig :D

Sandra said...

Til hamingju með laugardaginn :) hlakka til að sjá myndir.

Anonymous said...

hvað var svo gert í gæsuninni? Spill it woman! :D