Tuesday, April 24, 2007

Löng helgi..


Jæja þá er helgin búin..Ég er búin að vera meira og minna á mínu öðru heimili..

Helv...Finnarnir..Nei ég segi svona..Djjööö eru þeir sterkir...En við náðum samt einu jafntefli við þá...Svo ekki orð um það meir...Nema jú auðvitað að Falur var glæsilegur að vanda..


Núna er ég svo bara að undirbúa Mábil fyrir næstu helgi því þá er hún að keppa.

Ég er að kaupa svo flottann kjól handa henni...

Svo er ekki langt í að sú sæta verði 16 ára..Það er ótrúlegt að það eru komin 16ár síðan að hann Guðni var að rifna af stolti af Gullinu sínu..En það er ekki að stoltið hafi minkað eitthvað..Það er bara meira ef eitthvað er...



Þá er það Skrappið...

Ég hef ekkert verið að standa mig þar...Þetta er ótrúlegt að ég er á eftir með allt of margt...

En þetta stendur allt til bóta..Þar sem ég er loksins búin að eignast bassill bling...

Svo get ég ekki neitað að ég er farin að telja dagana þar til við förum í Skálholt...143 dagar til stefnu...Júhú...

Læt fylgja með mynd ef þið hafið ekki séð nýlega hvað ég á flott börn...

12 comments:

Anonymous said...

Geggjuð mynd. Hvar var hún tekin?

Sonja said...

142 dagar ;) kominn 25 apríl..
bíð spennt eftir góðri helgi

Signý Björk said...

Þessi mynd er tekinn á Siglufirði...Ég tók fullt af flottum myndum þar..

Unknown said...

142 dagar úff alltof langt í það.

Enn allavega ég held ég hafi aldrei kvittað hjá þér enn samt fylgst með þér, algjör sauður, enn mun núna alltaf kvitta fyrir heimsóknina :)

Endilega taka mynd af Mábil í kjólnum svo, finnst þessi íþrótt æði:)

Flottar myndir líka stráknum þínum.

og ég elska bleikan lit, flott bloggið þitt.

hannakj said...

flott mynd af krökkum þínum!

Heiðrún said...

já ohh manni var farið að hlakka til áður en við fórum úr Skálholti síðast :)

Flott hjá strákunum að gera jafntefli og major flott mynd af krökkunum..... ;)

Barbara Hafey. said...

Geggjuð mynd Enda SIgló FLOTTASTA út á landi pleizið og fólkið þaðan bara ÚBER BEAUTIFUL... ;)

Sandra said...

Flott mynd :) þau virðast nú vera að krókna úr kulda, en hvað gerir maður ekki fyrir flotta mynd?? haha

Barbara Hafey. said...

Þetta er sko sannarlega lööööööööööööööööööööönnnnnnggggg helgi hjá þér...........

Barbara Hafey. said...

það er sko kominn 1. maí...... hvar eru færslunar????

Þórunn said...

hi hon.....það er kominn 1. mai!!! er ekki helgin orðin heldur lööööng!!!??? ha?ha?ha?

Anonymous said...

hæj..;* gvuð ég trúi þessu ekkki!!
er þettta satttt??
er þetta... besta fólkið??;**
.. flott ´siða okkar er bianragy.blogspot.com:)
elskum ykkur
frá Klaustri:)